Co-Sponsored By
Adobe

Reykjavik, Capital Region Iceland (Lækjartorg hjá klukkunni.)

Saturday, October 1st, 2011
Sjálfsmynd Kim

This Location's walk has room for 42 more

Walk Organizer

Kim Mortensen Contact Leader

Meeting Location & Time

Saturday, October 1st (11:45am - 02:00pm)
Location: Hittumst hjá klukkunni á Lækjartorgi

Lækjargata, Reykjavik, Capital Region- Iceland

After the walk, meet at: Hittumst á Kaffi Paris

Best photo for this location

By Ottó Ottó

Walker Photos

Below are all walker photos that have been uploaded and entered in the 2011 Photo Walk photo contest.


  • Ottó Ottó

  • Marteinn Sigurðsson

  • Þorgils G. Gunnþórsson

  • fridrik Thorsteinsson

  • Ingunn Mjöll Sigurðardóttir

  • Sigrun Sigurdardottir

Get Directions
Meet Time: 11:45am - 02:00pm

Map is loading...

Photo Walk Description

Nafn mitt er Kim Mortensen og hef ég tekið að mér að vera göngustjóri í Alþjóðagöngu ljósmyndara 2011. Ég er áhugamaður um ljósmyndun og formaður ljósmyndafélagsins Fókus, hef tekið myndir frá því að ég man eftir mér.

Langar að bjóða þér að vera með í Alþjóðlegri göngu ljósmyndara sem fer fram út um allan heim helgina 1-2. október 2011. Allir áhugasamir um ljósmyndun velkomnir. Þarft að skrá þátttöku þína til að vera með.

Leggjum af stað frá klukkunni á Lækjartorgi kl: 12.00 laugardaginn 1. október og göngum um bæinn í leit að skemmtilegu myndefni. Ljósmyndagangan miðast við 2 klst.

Mætið með myndavélar og viðeigandi búnað, takið myndir eins og þið eigið lífið að leysa og síðan getið þið tekið þátt í ljósmyndakeppni og sú mynd sem vinnur í okkar gönguhópi fer síðan í alþjóðlega pottinn og eru þar vegleg verðlaun í boði. Takið einnig með ykkur viðeigandi föt fyrir Íslenska veðráttu. Nú ef veðrið er þannig að ekki er fært að taka myndir vegna veðurs þá reynum við bara plan B.

Að göngu lokinni hittumst við á kaffihúsi og tökum spjall saman.

Ljósmynda kveðja
Kim Mortensen

Comments for this walk 9 Responses to “Reykjavik, Capital Region Iceland (Lækjartorg hjá klukkunni.)”

  1. Ingunn Mjöll Sigurðardóttir says:

    Skelli mér með og hlakka til, búin að skrá mig :)

    Kv.Ingunn Mjöll

  2. Ingunn Mjöll Sigurðardóttir says:

    Frábær ljósmyndaganga, takk æðislega fyrir mig Kim og aðrir ferðafélagar :)

  3. Kim Mortensen says:

    Ég þakka ykkur öllum fyrir ljósmyndagönguna í dag.

    Ég vona að þið hafið haft gaman að þessu og vonandi verðum fjölmennari að ári.

    Göngu kveðjur
    KiM

  4. Kim Mortensen says:

    Sæl verið þið göngufélagar mínir.

    Það var ekki mikið mál að skipuleggja gönguna og gangan með ykkur var lítið mál.

    Allt í einu gerði ég mér grein fyrir að nú var komið að mér að velja þá mynd sem mér fyndist vera hlutskörpust og ætti heima í fyrsta sæti og væri fulltrúi Íslands í alþjóðlegu keppninni.

    Niðurstaða mín var að myndin hans Ottó ætti þetta sæti skilið.

    Myndbygging er mjög góð, góðar línur sem leiða augað inn í myndina. Berin í forgrunni gera myndina og eru jafnframt það sem skiptir máli. Lágt sjónarhornið styrkir síðan það sem komið er. Girðingin beggja vegna stýrir okkur síðan eftir stígnum.

    Mynd sem ég setti í annað sæti var myndin hans Þorgils.
    Ástæðan fyrir því var litasamsetning myndarinnar er áhugaverð og grípandi. Römmunin og form voru líka spennandi. Smá hlutir eins og hluti grindar eða hvað það var truflaði mig og fannst mér það draga úr myndinni.

    Myndin sem lenti í þriðja sæti hjá mér var myndin hennar Ingunnar og var þessi svart hvíta vinnsla sem lyfti myndinni upp. Vignettan finnst mér aðeins og mikil.

    Aðrar myndir lentu neðar eins og gefur að skilja. En mig langar samt að þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna. Ég hefði viljað sjá myndir frá öllum og auðvitað meiri þátttöku en við gerum bara betur næst.

    Sjáumst í næstu alþjóðagöngu ljósmyndara 2012.

    Göngu kveðjur
    Kim Mortensen
    Göngustjóri 2011

    • Ingunn Mjöll Sigurðardóttir says:

      Takk sömuleiðis fyrir fyrir mig, myndin hans Ottó frábær verðlaunamynd
      og óska ég honum innilega til hamingju og eins Þorgils fyrir annað sætið.

      Göngufélagakveðjur
      Ingunn

Leave a Comment

 

Please Log-in

Lost your info?